Ein af
mikilvægum hefðum Guinnessfélagsins er að árlega á föstudaginn langa er
Guinnessfundurinn haldinn í óbyggðum. Þannig heldur félagið
jarðsambandi og tengslum sínum við vætti og tröll sem leynast fjarri
byggðu bóli.
Gjarnan hafa þessir fundir verið í Jökulheimum eða á Grímsfjalli en
föstudaginn langa 2003 voru félagar á ferð um Dómadalsleið. Þegar klukkan
sló 17.00 voru fjallabifreiðarnar stöðvaðir og slegið upp fundi þar sem menn
voru staddir.
Myndir: M. Sæberg

Viðstaddir Guinnessfélagar búnir að stilla upp drukknum á húddið á fjallabifreið leiðtogans, tilbúnir að taka til við fundarstörf.

Viðstaddir voru félagar nr. 8, 2, 16, 3, 1 og 9. Félagar nr. 2 og 3 voru ekki með einkennisfatnað sinn meðferðis og gefa því númer sitt upp með fingrum.

Hellt í "glas"

