Þegar Guinnessfélagar fara til Dyflinar er eitt helsta skylduverkið að heimsækja
höfðustöðvarnar, Guinnessbrugghúsið.  Þess vegna tók vefstjóri á sig þá áhættu 
að stela af vefnum www.nat.is fróðleik um þennan mikilvæga stað.  Við verðum jú 
að vera vissir um að rata þangað!

Guinnessbrugghúsið stendur á u.þ.b 24 ha svæði við High Street.  Þar eru framleidd 
u.þ.b. 60% þess bjórs, sem Írar drekka.  Guinness Stout, eins og allur írskur bjór, er 
fullgerjaður.  Hann er dökkur, bruggaður með miklu af humlum og er því frekar 
bragðsterkur, sumir segja beiskur.  Bygg, humlar, ger og vatn eru einu efnin, sem 
notuð eru við gerð hans.  St. James's Gate Brewery var stofnað af Arthur Guinness 
árið 1759.  Það dafnaði, þrátt fyrir að enskir keppinautar, styrktir af ríkinu, 
framleiddu eftirlíkingu af bjórnum og flyttu hann til Írlands.  Hafnbann Napoleons 
snemma á 19. öld og hungursneyðin í Írlandi árið 1840 komu ekki í veg fyrir velgengni 
brugghússins og árið 1870 var það orðið hið stærsta í heimi.  Útflutningur jókst stöðugt.  
Fyrstu Guinness-brugghúsin, sem reist voru á erlendri grund voru opnuð í London árið 
1936 og síðar í Nígeríu, Gana, á Jamaica og í Malaysíu.  Brugghúsið í Dyflinni flytur út 
u.þ.b. 40% framleiðslu sinnar.

Þegar fjárhagslegur hagur Guinnessfjölskyldunnar fór að vænkast og alla tíð síðan 
hefur hún látið mikið fé af hendi rakna til ýmissa þjóðþrifamála, einkum í Dyflinni.  Hún 
lagði fé í endurbyggingu dómkirkju heilags Patreks, til byggingar félagslegra íbúða, 
styrkti ýmis velferðarmál og styrkir starfsmenn sína á margan hátt.  Fjölskyldan styrkir 
líka útgáfu Heimsmetabókar Guinness.

Gestamiðstöð brugghússins (aðalinngangur frá James Street) er opin mán. - föstud. 
kl. 10:00 - 15:00, en lokuð á almennum frídögum.  Þar er sýnd kvikmynd um sögu 
brugghússins, framleiðslurásin og gestum gefinn kostur á að smakka framleiðsluna.

Skammt sunnan brugghússins var höfn við skurð, sem tengdist Stóraskurði og Shannonskurði, 
sem gerði kleift að fleyta framleiðslunni til vesturhluta landsins.  Þessi skurður var fylltur 
upp, þegar járnbrautarsamgöngur hófust.