Félagar Guinnessfélagsins eru þeir einir sem uppfyllt hafa skilyrði til inngöngu samkvæmt lögum félagsins.
Leiðtoginn, GrettirSig
Fer með
æðsta vald í málefnum
félagsins og er tengiliður þess
við veröldina utan við kránna.
Vefstjórinn, Skúli
Ber
ábyrgð á andliti félagsins
í rafheimum. Í öðrum efnum ber
hann einnig einhverja ábyrgð á
eigin gjörðum, í samræmi við lög
félagsins.
Tæknistjórinn Óli
Ylur
Þó
viðurnefnið (já þetta er viðurnefni,
ekki ættarnafn) hafi Óli fengið sökum
snilli sinnar við að koma kyndingum í gang
í fjallakofum, þá þykir mörgum sem
nafnið hafi víðari skírskotun.
Þrátt fyrir að Birgir sé þekktur
fyrir að vera dagfarsprúður maður
og hvers manns hugljúfi, var baráttan
fyrir inngöngu hans í félagið með
eindæmum hörð og það svo að stórsá
á Leiðtoganum. Birgir hélt sig þó til
hlés í þeirri baráttu, en það er mat
manna að hann sé með eindæmum
vel giftur.
Einar
krafði inngöngu í félagið
með flutningi atómljóðs. Ekki skal
um það dæmt hvort ljóðið hafi orðið
þeirri kveðskaparhefð til framdráttar
en inngöngu fékk hann og er dyggur
félagsmaður og sannur í Guinnessanda.
Gunni nýtur
ýmiskonar sérréttinda
innan félagsins. T.d. er honum leyfilegt
að sækja fundi án þess að drekka
Guinness, en þó með því fororði að
hann fái sér annan jafndökkan drukk.
Það gerir Gunna ekki að minni
Guinnessmanni, enda er hann sá eini
í félaginu sem hefur heimsótt
höfuðstöðvarnar í Dublin.
Hugsuðurinn, Binni
Binni er
sagnfræðingur mikill og
vel að sér í ólíklegustu hlutum. Meðal
frægðarverka má nefna að honum
tókst að reka hagstofustjóra á gat
í lögum um lögheimili. Því er það að
þrátt fyrir áralanga búsetu í Reykjavík
á hann lögheimili í Borgarfirði, enda "dvelur
hann þar í frístundum og á þar bækur".
HÚtvörðurinn,
Helgi
Helgi
Kristjánsson er útvörður
Guinnessfélagsins í norðri. Þar
stendur hann fyrir útibúi félagsins
með höfuðstöðvar á Húsavík og mun
það vera nyrðsta starfandi
Guinnessfélag veraldar, a.m.k. meðal
dauðlegra manna.
Óli
gróðursæli
Vinur
alls þess sem lifir á jörð er
Óli gróðursæli. Meðan aðrir hýrast
inni í skjóli fyrir haustrigningum, er
Óli ötull við að undirbúa vini sína í
plönturíkinu undir harðræði vetrarins.
Óli telur það þó ekki eftir sér enda
uppsker hann ævinlega sem hann sáir.
Drengur
þessi er nýjast meðlimur
félagsins, en áður en til fullrar aðildar
kom hafði hann ötullega sótt
námskynningar og undirbúningsnámskeið.
Bendir ótvírætt til þess að Sigurjón
vandi vel til hverra starfa, sem bæði
inngöngukveðskapur hans ber með
sér og frammistaða hans á fundum.
Palli á móti
Palli er
einn af þeim fáu sem kemst upp
með að vera í tveimur sambúðum á sama
tíma. Annars vegar býr hann með henni
Ingibjörgu sinni, þó líklega ekki nema yfir
blánóttina. Hins vegar býr hann með
leiðtoganum í bílskúrnum. Þar dvelja þessar
turtildúfur löngum stundum og handlanga
smurfeiti og gormastífur eða standa í
öðru föndri með dótið sitt.

Bessi mun
að öllum líkindum vera aldurs-
forseti félagsins og nýtur ákeðinnar
virðingar sem slíkur. Ekki vegna þess að
Guinnessfélagar beri almennt svona
mikla virðingu fyrir aldri, heldur vegna
þess að hann hefur aldurs síns vegna
haft fleiri ár til að drekka Guinness,
Því hefur hann ákveðið forskot þegar
kemur
að andlegu atgerfi.